Frumkvöðullinn Magnea Jónasdóttir býr í Ölfusdal með fjölskyldu sinni. Hún hefur góða þekkingu á svæðinu og ríka tilfinningu fyrir verndun þess. Ást hennar á íslenskri náttúru varð kveikjan að því að opna Dalakaffi í þeim tilgangi að þjónusta útivistarfólk og hvetja almenning til upplifunnar í náttúrunni.
Í Dalakaffi geta gestir kitlað bragðlaukana í notalegu umhverfi. Gott kaffi, kjarnasúpur gerðar frá grunni úr úrvalshráefni og dýrindis tertur eru meðal þess sem matseðillinn inniheldur, auk úrvali drykkja til að skola góðgætinu niður með.
Norðan við Hveragerði er Ölfusdalur, óbyggður að mestu. Lengra í norður er Hengilssvæðið en þar er samfellt útivistarland með gönguleiðum sem ná frá Mosfellsheiði í vestri, Þingvallavatni í norðri og að Úlfljótsvatni í austri. Frábærar gönguleiðir fyrir allt áhugafólk um útivist í fallegu umhverfi.
Hér kemur myndagallerí af kaffihúsinu, gönguleiðum og náttúrunni.
Widget Area
This section is widgetized. To add widgets here, go to the Widgets panel in your WordPress admin, and add the widgets you would like to the Right Sidebar.
*This message will be overwritten after widgets have been added.